Magnús Bergsson heiti ég og er Hljóðmynd hugarfóstur mitt.
Áhugi minn á upptökum hófst í kringum 1975. Hef ég í gegnum árin tekið upp talsvert efni s.s. tónlist, umhverfishljóð og af mannlífi. Á þessum vef mun fólk fá nasasjón af þessum upptökum. Sumar hverjar þykja ósköp hversdagslegar, en að sama skapi athyglisverðar þegar þær heyrast einar og sér. Hugsun mín með síðunni er að útvarpa hljóði á vefnum á sama hátt og aðrir birta ljósmyndir. Á meðan aðrir glíma við sjónrænt efni legg ég áherslu á hljóðið. Upptökum verður ekki raðað í tímaröð heldur koma þær tilviljanakennt á vefin því mikið er til af gömlu efni. Fólki er frjálst að hlaða því efni niður sem birtist hér á vefnum. Á því er þó undantekning þar sem tónlist er höfundar- og fluttninsréttarvarin. Það verður þá sérstaklega tekið fram. Allt efni verður þó birt í samráði við höfund og flytjendur ef þess gerist þörf. Þeir sem vilja nota efni af þessum vef á opinberum stöðum s.s. á vefsíðum eða öðrum fjölmiðlum, er það heimilt svo lengi sem það komi fram hvaðan efnið sé fengið. Þá væri gott að fá tölvupóst því til staðfestingar á “fieldrecording.net@gmail.com”.
Vefurinn geymir að mestu MP3 skrár frá 128 kbps upp í 256 kbps. Flestar hljóðskrár eru viljandi hafðar hæfilega langar til að hlustendur geti komast í “hljóðræna stemmningu” meðan á spilun stendur. Það getur þó verið einstaklingum og hljóðskrám háð hvort það gerist eða ekki. Öllum er velkomið að skrifa ummæli við færslurnar.
Mörgum þykir gott að hlusta á náttúruhljóð. Innivinnandi fólk hefur sagt að það sé eins og að vinna við opinn glugga og skerpi athyglina að hafa náttúruhljóð í bakgrunni. Það virki oft betur en útvarp. Ég vona að vefsíðan Hljóðmynd muni gefa einhverjum tilefni til að staldra við og njóta þess sem í boði er.
Ég er tilbúinn til að taka upp ýmiss konar efni, allt sem nöfnum tjáir að nefna. Ég geri það ókeypis á meðan ekki kemur til sérstakur kostnaður. Ég geri þá einu kröfu að ég fái að halda eintaki af upptökunni. Ég reyni að taka upp allt efni í sem mestu gæðum í DSD eða WAV. Munu gæðin helst takmarkast af gæðum tækjakostsins og hugbúnaðar hverju sinni. Ég get skilað af mér upptökum í nærri því hvaða sniði sem er. Ég heiti fullum trúnaði með allt upptekið efni. Netfangið mitt er “fieldrecording.net@gmail.com” og simi 6162904.
Ertu náttúruunnandi á ferðalagi? Sjá nánar

Tækjabúnaður:
Upptökutæki
Sound Devices 744. Fjögurra rása SSD/CF (120Gb. WAV 24bit / 192Khz)
KORG MR1000 Harðdisk tæki (DSD 1Bit/5,644Mhz og WAV 24Bit/192Khz)
Sound Devices 552. Fimm rása SD flash sterio (WAV 24Bit/96Khz og MP3)
Olympus LS10 Flash tæki (WAV 24bit/96Khz og MP3)
Zoom H4n Flash tæki (WAV 24bit/96Khz og MP3)
SoundDevices 302. Þriggja rása/MS hljóðnemamagnari
Sony TC-D5 Kassettutæki (Analog uppfært)
Marantz CP 430 Kassettutæki (Analog)
Sony MZ-R30 MiniDisk tæki
Hljóðnemar
1 pr. Rode NT2000 (Variable Pattern 1″ Condenser Microphonen)
1 pr. Rode NT1-A (1″ cardioid)
1 pr. Rode NT2-A (Multi Pattern 1″ Condenser Microphone)
1 pr. Rode NT55 + NT45 Pencil condenser (cardioid) + (omni)
1 pr. Rode NT6 +NT45 Instrument condenser (cardioid) + (omni)
1 pr. SE Electronics SE 4 (cardioid)
2 pr. SE Electronics SE4400A (Multi Pattern 1″ Condenser Microphone)
1 st. Rode NT4 sterio mic. Condenser (cardioid capsule)
1 pr. af öllu Sennheiser K6, K6-P power modul og ME62, ME64, ME66 mic heads.
1 pr. Sennheiser MKE 2-60 gold Lavalier omni mic.
1 pr. Aquarian H2a-XLR Hydrophone.
1 st. MMaudio sterio lavalier omni mic (Sennheiser MKE series mic).
1 pr. Sennheiser K3U; ME20 og ME80.
1 st. Audio Technica AT821 sterio mic.
1 st. Audio Technica AT 815 shotgun.
Annað
Telinga Parabola
MMaudio EBM-1 Custom battery/filter modul.
Sennheiser HD25 II og HD650 heyrnatól.
Rode Blimp, Sennheiser og Rycote softie vindhlífar.
Hljóðnemakapplar eru Tasker, Klotz SQ 450P, CAT5 og CAT6 með Neutrik tengjum
M&K hljóðnemastandar og slár. Manfrotto 055MF4 & 732CY þrífætur og Gitzo GB1540 bóma.
Mbox og ProTools ofl.
Aðrir vefir ________________________________________________
http://picasaweb.google.com/fieldrecording.net
http://hljodmynd.blogspot.com/
http://soundcloud.com/fieldrecording-net/
http://audioboo.fm/fieldrecordings/
http://www.flickr.com/photos/iceland-nature/
http://www.facebook.com/magnus.bergsson
http://picasaweb.google.com/bergsson
http://skalholtsskoli77-78.blog.is
http://ulfljotsvatn.wordpress.com
__________________________________________________________
More info: Magnus Bergsson, mb@mi.is, Tel:+ 354 6162904