Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for the ‘Mannlíf’ Category

Áramótin 2011-2012 voru heldur óvenjuleg þetta skiptið þar sem ég dvaldi með tengdafjölsyldu minni á Tenerife. Eins og á Íslandi þá var skotið upp flugeldum. En á Tenerife er það ekki almennt almenningur sem skítur upp flugeldum heldur sjá hótelin um það, allavega á suðvestur horni eyjarinnar. Á H10 Conquistador hótelinu þar sem ég gisti [...]

Read Full Post »

Það er vart til það sumarhús sem ekki hefur heitan pott á veröndinni. Ansi oft er hann samkomustaður barna á daginn og fullorðinna á kvöldinn. Í júli 2011 dvaldi fjölskyldan í stéttarfélagsbústað nærri Flúðum. Auðvitað var potturinn mikið notaður. Sonurinn dvaldi þar oft löngum stundum og var þá tilefni til að lauma hljóðnemum í vatnið. [...]

Read Full Post »

Faðir minn, Bergur Jónsson (f. 16.4.1934 – d. 28.9.2011), hefur líklega haft meiri áhrif á líf mitt en í fljótu bragði mætti halda. Hann kveikti áhuga minn á ýmsu s.s. skátum, hjólreiðum, ferðalögum, ljósmyndun og mjög mörgu öðru enda stundaði hann félagslíf á mörgum sviðum. Sem rafmagsverkræðingur hafði hann að hluta líka áhrif á að [...]

Read Full Post »

Einn er sá hljóðbloggari sem ég fylgist reglulega með. Er það Des Coulam í Paris sem heldur úti blogginu Soundlandscape. Er það rómað fyrir skemmtilega frásögn af borgarlífinu og því sem borgin hefur að geyma í fortíð og nútíð. Oftar en ekki beitir hann Binaural tækni við upptökur sínar. Eru litlir hljóðnemar þá staðsettir sem [...]

Read Full Post »

Sú daufa hljóðmynd sem ég náði af nýliðnum áramótunum 2010 til 2011 varð til þess að ég fór að hugsa hvort minna hefði verið skotið af flugeldum nú en áður. Ekki átti ég upptöku af áramótunum 2007-2008. Þau ármót voru þau geggjuðustu sem ég hafði upplifað. Þá hvarf höfuðborgarsvæðið allt í eiturmóðu svo mér og [...]

Read Full Post »

Ísland er einn fárra staða í heiminum þar sem almenningur fær að leika sér með sprengiefni og flugelda að vild um áramót. Ekkert jafnaðist á við áramótin 2006, 2007 og 2008 en þau áramótin voru Reykvíkingar nærri búnir að drepa sig í baneitruðu efnaskýji sem myndaðist í logni og ofboðslegu skoteldafári. Loftgæðin voru heldur betri [...]

Read Full Post »

Allnokkuð var af fólki í Kringlunni þann 18. desember 2010. Flestir voru í þeim erindagjörðum að kaupa glingur og gjafir. Því má segja að jól á Vesturlöndum séu í raun gróðahátíð kaupmanna. Þó margir hafi verið í Kringlunni á þessum tíma þá heyrðist ekki mikið í þessum fjölda. Helst var það tónlist frá verslunum sem [...]

Read Full Post »

Aðventan er hjá mörgum mikill streitutími, ekki síst hjá þeim sem gera miklar kröfur um að hefðir og venjur verði uppfylltar. Sumir kunna þó að njóta dimmustu daga ársins, ekki síst börnin sem fá það á tilfinninguna að eitthvað spennandi gersit á jólum þegar sól fer að hækka á lofti. Aðventan er oft nýtt til [...]

Read Full Post »

Helgi Hóseasson var þekktasti mótmælandi Íslands. Stóðu mótmæli hans allt frá árinu 1962 til dauðadags 6. september 2009. Síðustu árin stóð hann daglangt flesta daga á horni Langholtsvegar og Holtavegar með áletruð skilti sem oft vöktu eftirtekt en fáir skildu. Þann 6. september 2010, ári frá andláti Helga, stóðu samtökin Vantrú og Facebook hópur að [...]

Read Full Post »

Ár hvert er dagur íslenskrar tungu. Er sá dagur haldinn á afmælisdegi  Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember. Eru það helst skólar og fjölmiðlar sem halda deginum á lofti. Þann 9. nóvember var foreldum annars bekkjar í Breiðagerðisskóla boðið í söngtíma barna sinna. Var það gert í tilefni þess að dagur íslenskrar tungu var í aðsigi. [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.