Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for the ‘Náttúra’ Category

Ekki er hægt að segja að veðrið hafi verið skemmtilegt það sem af er aprílmánuði.  Kuldi, hávaðarok og leiðinda rigning eða éljagangur. Einn versti dagurinn var líklega 10. apríl. Þá gerði hávaðaútsýning um allt land, ekki síst á Suður- og Vesturlandi. Margir urðu veðurtepptir víða um land. Útihús og þök fuku og tré brotnuðu í [...]

Read Full Post »

Í vetur hef ég reglulega fóðrað fugla hverfisins með brauði og öðrum matarleifum. Þann 18. mars 2011 gekk á með vestan útsynningi þar sem skiptist á með hvössum éljum, dúnmjúkri snjókomu, glaða sólskini og logni. Stillti ég upp hljóðnemum í um tveggja metra fjarlægð frá fóðurstað. Fuglar sveimuðu í kring og sumir ætluðu að setjast [...]

Read Full Post »

Um hvítasunnu þann 24. maí 2010 fór ég vestur á Flateyri og auðvitað fóru upptökutækin með. Fáir fuglar voru á sveimi í firðinum, kalt í veðri, með norðan kalda yfir daginn svo hljóð frá fuglum bárust lítið um fjörðinn.  Yfir blánóttina lægði. Mátti þá  helst heyra í hópum máffugla úti á miðjum firði suður og austur [...]

Read Full Post »

Það eru ófáar ferðirnar sem ég hef farið út á Seltjarnarnes til að hljóðrita. Ein af mínum uppáhalds upptökum er frá því 10. júní 1994. Hefur hún verið fáanleg í fullri lengd á CD diski í nokkur ár. Hér er á ferðinni eitt þessara hljóðrita þar sem allt gekk upp til að hljóðritið heppnaðist. Algert [...]

Read Full Post »

Í byrjun nóvember kyngdi niður fyrsta snjónum á suðvestur horni landsins.  Það minnti mig óneitanlega á að veturinn væri rétt að ganga í garð. Það voru nákvæmlega átta mánuðir frá því ég síðast komst í tæri við snjó. Var það síðustu páska á Ísafirði. Talsvert vetrarríki ríkti um alla Vestfirði en laugardaginn fyrir páska gerði [...]

Read Full Post »

Ekkert jafnast á við það að liggja úti í náttúrunni og fá tækifæri til að hlusta á fuglana í þögn frá vélardrunum mannsins. Hljóðin hafa mikið breyst á ótrúlega fáum árum. Með hverju ári verður sífellt erfiðara að nálgast fuglahljóð í ómengaðri náttúru. Með sífellt meiri hávaða og loftmengun er mannskepnan ekki aðeins að breyta [...]

Read Full Post »

Það er ekki auðvelt að hljóðrita þögn og skila því frá sér svo einhver nenni að hlusta. En satt best að segja tókst mér það á dögunum undir húsvegg í friðlandinu í Flóa. Undir norðurhlið hússins hefur sauðfé greinilega skýlt sér gegn sunnan sudda eða frá heitum sólargeislum. Það er sauðfé eðlislægt að gera þarfir [...]

Read Full Post »

Fyrir rétt rúmum mánuði, þann 4. maí, hljóðritaði ég fuglasöng við golfskálann á Seltjarnarnesi. Þá heyrðist ekkert í kríu, aðeins í gæsum, mó- og vaðfuglum. Þann 10. júní mætti ég í annað sinn með upptökutækin. Var krían þá komin á Nesið, fremur hávær og ákaflega árásargjörn eins og vera ber. Hljóðnemum var nú aftur komið [...]

Read Full Post »

Svartþröstum virðist fjölga hér á landi. Eru þó vart meira en 20 ár frá því hann fór að verpa hér á landi. Fyrst tók ég eftir honum fyrir u.þ.b. fjórum árum í Vogahverfinu þegar ég átti þar leið um snemma á morgnana. Svartþrösturinn er venjulega felugjarn nema syngjandi karlfuglinn á vorin, sem þá hreykir sér [...]

Read Full Post »

Í lok apríl og byrjun maí gerði ég nokkrar tilraunir til að hljóðrita fuglalíf á Seltjarnarnesi. Ég gafist upp á því vegna stanslausrar bílaumferðar fram og til baka út á nesið. Það var líka fjöldi fólks sem virtist stunda sína útiveru á Nesinu, ekki síst við Bakkatjörn, með því að sitja í bílunum í vegkantinum [...]

Read Full Post »

« Nýrri færslur - Eldri færslur »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.