Fuglar í fjöru. Seltjarnarnes 10. júní 1994
Veður var stillt og því hentaði vel að taka upp söng fuglanna sem flestir voru komnir með unga. Einkenni þessarar upptöku er léttur niður öldunnar sem seytlar milli sandkornanna í fjöruborðinu. Heyra má í æðarkollum með ungum sínum hamast við fæðuleit í fjöruborðinu. Að auki má heyra í öðrum fuglum sem einkenna Seltjarnarnesið s.s. kríu, lóu og hrossagauk. Náttúran er síðan síbreytileg þar sem heyra má mismikið í öldum hafsins gæla við fjöruborði. Upptakan er glettilega góð miðað við hvað langur tími leið frá upptökunni þar til hún var færð yfir á stafrænt form á geisladisk. Upptakan er ekkert unnin eftirá og miðast við það að sem minnst sé fiktað við þann náttúrulega ferskleika sem heyra má í náttúruni.Innihald disksins hentar vel fyrir svefninn eða til að róa taugar og slaka á. Hann fyllir upp í þrúgandi þagnir og hentar vel í samkvæmi þar sem tónlist hefur truflandi áhrif á samræður. Best er að spila diskinn á lágum hljóðstyrk.
1. hluti: Upptaka milli kl. 04 og 05
2. hluti: Upptaka milli kl. 05 og 06
Upptakan er gerð á SONY TC-D5M kassettutæki sem hefur verið endurhannað til að skila sem mestum hljómgæðum. Snældan er TDK MA-90 (metal bias). Hljóðnemar eru Sennheiser K3U með Modul ME20 (omnidirectional) á vinstri rás og ME80 (cardioid/shotgun) á hægri rás. Báðir hljóðnemar höfðu vindhlíf auk lágtíðnisíu sem klippti lægstu tíðni frá 100Hz (-8dB við 50Hz). Hljóðnemasnúrur eru 1 metri að lengd frá Audio Technica. Hljóðnemar voru settir á bómu við fjöruborðið. Var 40 cm bil milli þeirra með rúmlega 100 gráðu horni. Vinstri rásin skilaði hljóðum næst bómunni og fjöruborðinu. Hægri rásin skilaði hljóðum frá fuglum sem voru nær kríuvarpinu en þar var stór hópur annarra fuglategunda í fjöruborðinu.
Ef þú villt fá diskinn hafðu samband við Magnús á fieldrecording.net@gmail.com
Hljóðdæmi: Sækja skrá (192kbps/41Mb)
__________________________________________________________________
Fuglar í fjöru 25. maí 2000
Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að taka upp fuglasöng við veðurskilyrði eins og voru þessa nótt á Seltjarnarnesi 25. júní 2000. Veður var einstaklega stillt og allir fuglar voru komnir með unga. Einkenni þessarar upptöku er návígið við æðarkollur og unga þeirra sem leita fæðu í flæðarmálinu. Í mikilli nálægð er hægt er að heyra buslið í ungunum og hvernig kollan kennir þeim og ver þá gegn varasömum gestum. Að auki má heyra í öðrum fuglum sem einkenna Seltjarnarnesið s.s. kríu, tjald, lóu og hrossagauk. Hljóðin eru síðan síbreytileg þar sem heyra má fuglahópa koma og fara í stöðugri leit sinni að fæðu. Upptakan er góð, því notast var við nýja gerð kapla frá hljóðnemum að upptökutæki. Upptakan er ekkert unnin eftirá og miðast við það að sem minnst sé fiktað við þann náttúrulega ferskleika sem heyra má í náttúrunni. Innihald disksins hentar vel fyrir svefninn eða til að róa taugar og slaka á. Hann fyllir upp í þrúgandi þagnir og hentar vel í samkvæmi þar sem tónlist hefur truflandi áhrif á samræður. Best er að spila diskinn á lágum hljóðstyrk
1. hluti: Upptaka milli kl. 05 og 06
2. hluti: Upptaka milli kl. 06 og 07
Upptakan er gerð á SONY TC-D5M kassettutæki sem hefur verið endurhannað til að skila sem mestum hljómgæðum. Snældan er af TDK gerð MA-90 (metal bias). Hljóðnemar eru Sennheiser K3U með Modul ME20 á báðum rásum. Báðir hljóðnemar höfðu vindhlíf auk lágtíðnisíu sem klippti lægstu tíðni frá 500Hz (-10dB við 100Hz og -20dB við 50Hz).Hljóðnemasnúrur eru Category 6 data kaplar, 1 metri í hvora rás. Hljóðnemar voru settir á bómu innan við 50 cm frá fjöruborði . Var 40 cm bil milli hljóðnemanna með rúmlega 100 gráðu horni.
Ef þú hefur áhuga að fá diskinn hafðu þá samband við Magnús á fieldrecording.net@gmail.com
Hljóðdæmi (kemur síðar)
__________________________________________________________________