Í lok apríl og byrjun maí gerði ég nokkrar tilraunir til að hljóðrita fuglalíf á Seltjarnarnesi. Ég gafist upp á því vegna stanslausrar bílaumferðar fram og til baka út á nesið. Það var líka fjöldi fólks sem virtist stunda sína útiveru á Nesinu, ekki síst við Bakkatjörn, með því að sitja í bílunum í vegkantinum [...]
Posts Tagged ‘Fuglar’
Fyrir komu Kríunnar
Posted in Náttúra, tagged Æðarfugl, Birds, Fuglar, Fuglasöngur, Hrossagaukur, Korg MR1000, Rode Blimp, Seltjarnarnes, Sennheiser ME62 on 18.5.2010 | 5 ummæli »
Fuglasöngur 13. mars 2010
Posted in Náttúra, tagged Fuglar, Fuglasöngur, MMaudio, Olympus LS10, Telinga on 14.3.2010 | 2 ummæli »
Mér hefur gengið erfiðlega að ná upptökum af svartþresti sem helgað hefur sér svæði í næsta garði við húsið mitt. Hvert skipti sem ég læðist út með upptökutækin heyrast viðvörunarhljóð og hann lætur sig hverfa. Yfirleitt tekur hann þá með sér aðra fugla svo garðurinn og næsta nágrenni verður fuglalaus jafnvel sólarhringum saman. Mér tókst [...]
Fuglar í golfi
Posted in Mannlíf, tagged Fuglar, Fuglasöngur, Gólf, Korg MR1000, Seltjarnarnes, Sennheiser ME62 on 20.2.2010 | 2 ummæli »
Á Seltjarnarnesi er að finna kríuvarp sem laðar að sér ýmsa fugla s.s. grágæsir, spóa, hrossagauka og golfara. Er þetta nes eitt af náttúruperlum höfuðborgarsvæðisins, ekki síst vegna fjölskrúðugs fuglalífs. Það er líklegt að þessi náttúruperla væri ekki til ef á nesinu væri ekki víðáttumikill golfvöllur. Ólíkt golfvöllum sunnar á jörðinni, þá geta íslenskir golfvellir [...]
Hvítasunna við Laugarvatn
Posted in Náttúra, tagged Fuglar, Fuglasöngur, Hljóðnemi, Kassetta, Laugarvatn, Sennheiser ME20, Sony TC-D5, Upptaka on 19.12.2009 | 2 ummæli »
Það var líklega um hvítasunnu 1985 sem við fórum nokkur saman í tjaldútilegu að Laugarvatni. Að sjálfsögðu hafði ég með mér Sony TC-D5 upptökutæki og ME20 hljóðnema. Þegar klukkan var farin að nálgast 4 að morgni rölti ég til suðurs frá tjaldsvæðinu austur af Laugarvatni og hóf upptöku líklega um 500 metra frá veginum. Á [...]
Æðarfugl á Seltjarnarnesi
Posted in Náttúra, tagged Æðarfugl, Fjara, Fuglar, Korg MR1000, Seltjarnarnes, Sennheiser ME66 on 19.11.2009 | Leave a Comment »
Vorið 2009 var fremur kalt með köldum norðanáttum. Fuglalíf var því ekki með neinum ágætum þetta vor. Ugglaust brást varp hjá mörgum fuglum, þó að ekki bæri mikið á því á Seltjarnarnesi. Milli kl. 5 og 6 hinn 12. júní, fór ég út á Nes og hljóðritaði hljóð æðarfugls í fjöruborðinu. Allhvöss norðanátt var á [...]
Júlímorgunn í Vesturdal
Posted in Náttúra, tagged Fuglar, Fuglasöngur, Lækur, Vesturdalur on 11.10.2009 | Leave a Comment »
Það var heiðskírt og sólin var að gægjast upp fyrir sjóndeildarhringinn við Jökulsárgljúfur. Klukkan var 4:30 12.júlí 2009. Í Vesturdal liðast lítill, tær lækur í átt að Jökulsá á leið sinni til sjávar. Ofar í dalnum sváfu allir fasta svefni á tjaldsvæðinu. Það ríkti því dásamleg þögn. Aðeins heyrðist seytlið í læknum og einstaka tíst [...]