Feeds:
Færslur
Ummæli

Posts Tagged ‘Fuglasöngur’

Hér er svo til beint framhald af “Friðland í Flóa 2011 – fyrsta hluta” sem birt var í nóvember s.l. Hér er klukkan líklega milli 02-03. Fátt meira er um þetta hljóðrit að segja en sagt var í fyrri færslu, nema að hér er bílaumferðin í lágmarki og í hennar stað er farið að heyrast [...]

Read Full Post »

Fyrir rúmu ári setti ég á vefinn upptöku af fuglalífinu í friðlandinu í Flóa. Eftir þá ferð var ég harðákveðinn að koma aftur ári síðar. Dagana yfir sumarsólstöður nú í sumar tjaldaði ég því við Eyrarbakka með allt mitt hafurtask. Nú kom ég líka með suðminni magnara og hljóðnema. Rétt fyrir miðnætti lagði ég af [...]

Read Full Post »

Laugardagsmorgun, þann 28. maí 2011, fór ég upp í Heiðmörk til að hljóðrita fuglalíf. Hálfum mánuði áður hafði ég farið á sama stað en þá gleymdist að ræsa upptökuna. Ferðin varð því ekki til fjár. Í þetta sinn átti það ekki að gerast aftur. Ég kom mér fyrir við ósa Hólmsár þar sem hún rennur [...]

Read Full Post »

Ekkert jafnast á við það að liggja úti í náttúrunni og fá tækifæri til að hlusta á fuglana í þögn frá vélardrunum mannsins. Hljóðin hafa mikið breyst á ótrúlega fáum árum. Með hverju ári verður sífellt erfiðara að nálgast fuglahljóð í ómengaðri náttúru. Með sífellt meiri hávaða og loftmengun er mannskepnan ekki aðeins að breyta [...]

Read Full Post »

Það er ekki auðvelt að hljóðrita þögn og skila því frá sér svo einhver nenni að hlusta. En satt best að segja tókst mér það á dögunum undir húsvegg í friðlandinu í Flóa. Undir norðurhlið hússins hefur sauðfé greinilega skýlt sér gegn sunnan sudda eða frá heitum sólargeislum. Það er sauðfé eðlislægt að gera þarfir [...]

Read Full Post »

Fyrir rétt rúmum mánuði, þann 4. maí, hljóðritaði ég fuglasöng við golfskálann á Seltjarnarnesi. Þá heyrðist ekkert í kríu, aðeins í gæsum, mó- og vaðfuglum. Þann 10. júní mætti ég í annað sinn með upptökutækin. Var krían þá komin á Nesið, fremur hávær og ákaflega árásargjörn eins og vera ber. Hljóðnemum var nú aftur komið [...]

Read Full Post »

Svartþröstum virðist fjölga hér á landi. Eru þó vart meira en 20 ár frá því hann fór að verpa hér á landi. Fyrst tók ég eftir honum fyrir u.þ.b. fjórum árum í Vogahverfinu þegar ég átti þar leið um snemma á morgnana. Svartþrösturinn er venjulega felugjarn nema syngjandi karlfuglinn á vorin, sem þá hreykir sér [...]

Read Full Post »

Í lok apríl og byrjun maí gerði ég nokkrar tilraunir til að hljóðrita fuglalíf á Seltjarnarnesi. Ég gafist upp á því vegna stanslausrar bílaumferðar fram og til baka út á nesið. Það var líka fjöldi fólks sem virtist stunda sína útiveru á Nesinu, ekki síst við Bakkatjörn, með því að sitja í bílunum í vegkantinum [...]

Read Full Post »

Mér hefur gengið erfiðlega að ná upptökum af svartþresti sem helgað hefur sér svæði í næsta garði við húsið mitt. Hvert skipti sem ég læðist út með upptökutækin heyrast viðvörunarhljóð og hann lætur sig hverfa. Yfirleitt tekur hann þá með sér aðra fugla svo garðurinn og næsta nágrenni verður fuglalaus jafnvel sólarhringum saman. Mér tókst [...]

Read Full Post »

Á Seltjarnarnesi er að finna kríuvarp sem laðar að sér ýmsa fugla s.s. grágæsir, spóa, hrossagauka og golfara. Er þetta nes eitt af náttúruperlum höfuðborgarsvæðisins, ekki síst vegna fjölskrúðugs fuglalífs. Það er líklegt að þessi náttúruperla væri ekki til ef á nesinu væri ekki víðáttumikill golfvöllur. Ólíkt golfvöllum sunnar á jörðinni, þá geta íslenskir golfvellir [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.