Hér er á ferð samantekt af fimm hljóðritum sem tekin voru upp 3. apríl 2011 þegar ég og vinnufélagi minn Haukur Guðmundsson fórum dagsferð um Reykjanesið. Byrjað var á því að fara að Kleifarvatni þar sem farið var að hverum sem komu upp á yfirborðið eftir jarðskjálftana árið 2000 þegar lækkaði skyndilega í vatninu. Ekki [...]
Posts Tagged ‘Korg MR1000’
Jarðskjálftinn við Seltúnshver
Posted in Náttúra, tagged Öldur, Coast, Earthquake, Fjara, Geothermal area, Háhitasvæði, Hot spring, Hverir, Jarðskálfti, Korg MR1000, Ocean, Reykjanes, Rode NT2a, Rode NT4, Sennheiser ME64, Sound devices 552, Wave on 11.3.2012 | 3 ummæli »
Friðland í Flóa 2011 – annar hluti
Posted in Náttúra, tagged Birds, Friðland í Flóa, Fuglar, Fuglasöngur, Korg MR1000, Nature reserve, Rode NT1a, Sound devices 552 on 21.1.2012 | 4 ummæli »
Hér er svo til beint framhald af “Friðland í Flóa 2011 – fyrsta hluta” sem birt var í nóvember s.l. Hér er klukkan líklega milli 02-03. Fátt meira er um þetta hljóðrit að segja en sagt var í fyrri færslu, nema að hér er bílaumferðin í lágmarki og í hennar stað er farið að heyrast [...]
Pottormur
Posted in Mannlíf, tagged Aquarian H2a-XLR, Heitur pottur, Hot tub, Korg MR1000, Sound devices 552, Undewater recording on 1.12.2011 | 1 ummæli »
Það er vart til það sumarhús sem ekki hefur heitan pott á veröndinni. Ansi oft er hann samkomustaður barna á daginn og fullorðinna á kvöldinn. Í júli 2011 dvaldi fjölskyldan í stéttarfélagsbústað nærri Flúðum. Auðvitað var potturinn mikið notaður. Sonurinn dvaldi þar oft löngum stundum og var þá tilefni til að lauma hljóðnemum í vatnið. [...]
Friðland í Flóa sumarið 2011 – 1. hluti
Posted in Náttúra, tagged Friðland í Flóa, Fuglar, Fuglasöngur, Korg MR1000, Nature reserve, Rode NT1a, Sound devices 552 on 1.11.2011 | 10 ummæli »
Fyrir rúmu ári setti ég á vefinn upptöku af fuglalífinu í friðlandinu í Flóa. Eftir þá ferð var ég harðákveðinn að koma aftur ári síðar. Dagana yfir sumarsólstöður nú í sumar tjaldaði ég því við Eyrarbakka með allt mitt hafurtask. Nú kom ég líka með suðminni magnara og hljóðnema. Rétt fyrir miðnætti lagði ég af [...]
Hvað er undir kajaknum?
Posted in Náttúra, tagged Aquarian H2a-XLR, Gufunes, Kayak, Korg MR1000, Neðansjávarupptaka, Sound devices 552, Undersea recording on 28.8.2011 | 4 ummæli »
Þau skipti sem ég hef róið kajak á sjó hef ég oft leitt hugann að því að líklega væri meira spennandi að vera neðansjávar en ofan. Áhugi minn á lífinu neðansjávar minnkaði svo ekkert við það þegar ég fékk mér neðansjávarhljóðnema og gat farið að hlusta á þann hljóðheim sem þar er. Hljóðin sem hér [...]
Sópransöngur í Laugarneskirkju
Posted in Tónlist og útgáfur, tagged Anna Jónsdóttir, Antonia Hevesi, Church, Kirkja, Korg MR1000, Laugarneskirkja, Piano, Sópran, SE1a, SE4400a, Song, Sound devices 552 on 9.8.2011 | 3 ummæli »
Laugarneskirkja er í Laugarnesprestakalli, Reykjavíkurprófastdæmi. Var hún teiknuð af Guðjóni Samúelssyni (f.1887 – d.1950) og vígð þann 18. desember árið 1949. Þann 3. júlí 2011 hljóðritaði ég söng Önnu Jónsdóttur sópransöngkonu í kirkjunni við undirleik Antoniu Hevesi á pianó . Anna hóf söngnám við Nýja tónlistarskólann hjá Alinu Dubik og lauk þaðan burtfararprófi vorið 2003. [...]
Suðvestan kaldi á sumarsólstöðum
Posted in Náttúra, tagged Friðland í Flóa, Korg MR1000, Rode NT1a, Rok, Sauðkind, Sound devices 552, Starri, Veður on 9.7.2011 | 2 ummæli »
Vindur, væta og kuldi er lýsandi fyrir veðráttuna vorið 2011. Fuglar hættu við eða frestuðu varpi. Á sumarsólstöðum var ég staddur á friðlandi í Flóa í leit af fuglahljóðum. Ekki gekk það vel því úti var bæði rok og rigning. Á meðan ég lét tímann líða ákvað ég að taka upp inni í fuglaskoðunarhúsinu. Reglulega [...]
,,Jæja, ég geri ráð fyrir því að vorið sé komið.”
Posted in Náttúra, tagged Birds, Fuglar, Fuglasöngur, Gæsir, Heiðmörk, Korg MR1000, Rode NT1a, Sound devices 552 on 31.5.2011 | 2 ummæli »
Laugardagsmorgun, þann 28. maí 2011, fór ég upp í Heiðmörk til að hljóðrita fuglalíf. Hálfum mánuði áður hafði ég farið á sama stað en þá gleymdist að ræsa upptökuna. Ferðin varð því ekki til fjár. Í þetta sinn átti það ekki að gerast aftur. Ég kom mér fyrir við ósa Hólmsár þar sem hún rennur [...]
Andantino Romanza
Posted in Tónlist og útgáfur, tagged Korg MR1000, SE1a, SE4400a, Sinfóníuhljómsveit, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Sound device 302, Tónlist, Tónverk on 10.4.2011 | 5 ummæli »
Mario Castelnuovo-Tedesco (1895 – 1968) fæddist í Flórens og starfaði fyrri hluta starfsævinnar á Ítalíu sem tónskáld og píanóleikari. Hann var af gyðingaættum og flúði til Bandaríkjanna árið 1939 með konu sinni og tveimur ungum sonum. Hann settist að í Hollywood, starfaði fyrir MGM Studios og samdi tónlist við fjölda kvikmynda. Hann samdi einnig mikinn [...]
Trilla á leið frá Flateyri
Posted in Náttúra, tagged Önundarfjörður, Fjara, Flateyri, Korg MR1000, Sea, Seashore, Sennheiser ME62, Sjór on 10.3.2011 | Leave a Comment »
Um hvítasunnu þann 24. maí 2010 fór ég vestur á Flateyri og auðvitað fóru upptökutækin með. Fáir fuglar voru á sveimi í firðinum, kalt í veðri, með norðan kalda yfir daginn svo hljóð frá fuglum bárust lítið um fjörðinn. Yfir blánóttina lægði. Mátti þá helst heyra í hópum máffugla úti á miðjum firði suður og austur [...]