Feeds:
Færslur
Ummæli

Posts Tagged ‘Korg MR1000’

Fimmtudaginn 30. desember 2010 dýfði ég hljóðnemum í sjóinn í Sundahöfn. Ekki var við neinu merkilegu að búast. Þrjú skip voru í höfn, Wilson Brugge, Dettifoss og Goðafoss. Vélahljóð frá ljósavélum yfirgnæfði allt. Heyra mátti að dælur fóru í gang í skipunum og einstaka bank, líklega þegar einhverju var slegið utan í skipssíðuna. Í gegn [...]

Read Full Post »

Sú daufa hljóðmynd sem ég náði af nýliðnum áramótunum 2010 til 2011 varð til þess að ég fór að hugsa hvort minna hefði verið skotið af flugeldum nú en áður. Ekki átti ég upptöku af áramótunum 2007-2008. Þau ármót voru þau geggjuðustu sem ég hafði upplifað. Þá hvarf höfuðborgarsvæðið allt í eiturmóðu svo mér og [...]

Read Full Post »

Ísland er einn fárra staða í heiminum þar sem almenningur fær að leika sér með sprengiefni og flugelda að vild um áramót. Ekkert jafnaðist á við áramótin 2006, 2007 og 2008 en þau áramótin voru Reykvíkingar nærri búnir að drepa sig í baneitruðu efnaskýji sem myndaðist í logni og ofboðslegu skoteldafári. Loftgæðin voru heldur betri [...]

Read Full Post »

Helgi Hóseasson var þekktasti mótmælandi Íslands. Stóðu mótmæli hans allt frá árinu 1962 til dauðadags 6. september 2009. Síðustu árin stóð hann daglangt flesta daga á horni Langholtsvegar og Holtavegar með áletruð skilti sem oft vöktu eftirtekt en fáir skildu. Þann 6. september 2010, ári frá andláti Helga, stóðu samtökin Vantrú og Facebook hópur að [...]

Read Full Post »

Í byrjun nóvember kyngdi niður fyrsta snjónum á suðvestur horni landsins.  Það minnti mig óneitanlega á að veturinn væri rétt að ganga í garð. Það voru nákvæmlega átta mánuðir frá því ég síðast komst í tæri við snjó. Var það síðustu páska á Ísafirði. Talsvert vetrarríki ríkti um alla Vestfirði en laugardaginn fyrir páska gerði [...]

Read Full Post »

Tvö ár eru liðin frá sýndargóðæri og bankahruni frjálshyggjumanna sem meirihluti þjóðarinnar kaus inn á þing hvað eftir annað. Á þessum tveimur árum sem liðin eru hefur vinstri stjórn átt í fullu fangi með að vinna úr afleiðingum hrunsins. Rúmlega helmingur alþingismanna er ófær um að taka á vandanum. Margir af þeim tóku virkan þátt [...]

Read Full Post »

Hljóðfæraleikarar fjölmenntu á efstu hæð á Highlander á Lækjargötu 10, þann 15. júlí 2010. Enginn virtist í stuði fyrst til að byrja með. En þegar fór að líða á kvöldið þá duttu menn í gírinn og þá birtust söngvarar, einn innlendur sem áður hefur sungið með þessum hópi og tveir erlendir ferðamenn sem óvart voru [...]

Read Full Post »

Ekkert jafnast á við það að liggja úti í náttúrunni og fá tækifæri til að hlusta á fuglana í þögn frá vélardrunum mannsins. Hljóðin hafa mikið breyst á ótrúlega fáum árum. Með hverju ári verður sífellt erfiðara að nálgast fuglahljóð í ómengaðri náttúru. Með sífellt meiri hávaða og loftmengun er mannskepnan ekki aðeins að breyta [...]

Read Full Post »

Það er því miður fámennur hópur fólks sem gefið hefur sér tíma í hádeginu til að mæta niður á Hverfisgötu framan við greni AGS og mótmælt úreltum hagstjórnargjörningum þeirra. En þótt hópurinn sé fámennur þá er hann býsna hávær. Það er því ólíklegt að útsendarar AGS fái mikinn vinnufrið undir þeim hljóðum sem heyrast í [...]

Read Full Post »

Það er ekki auðvelt að hljóðrita þögn og skila því frá sér svo einhver nenni að hlusta. En satt best að segja tókst mér það á dögunum undir húsvegg í friðlandinu í Flóa. Undir norðurhlið hússins hefur sauðfé greinilega skýlt sér gegn sunnan sudda eða frá heitum sólargeislum. Það er sauðfé eðlislægt að gera þarfir [...]

Read Full Post »

« Nýrri færslur - Eldri færslur »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.