Um miðjan mars 2011 var ég sendur austur á Reyðarfjörð til að sinna viðgerð á Gottwald HMK300E hafnarkrana, öðru nafni Jötunn II. Krana þennan eignaðist Eimskip sumarið 2004. Var hann fyrstu árin í Sundahöfn í Reykjavík eða til ársins 2007. Þá fékk Eimskip það verkefni að sjá um lestun og losun í tengslum við álverið [...]
Posts Tagged ‘Sound devices 552’
Gottwald HMK300E í vinnu
Posted in Óflokkað, tagged Gámakrani, Gottwald crane, Reyðarfjörður, Rode NT4, Sound devices 552, Vélahljóð on 15.6.2011 | 6 ummæli »
,,Jæja, ég geri ráð fyrir því að vorið sé komið.”
Posted in Náttúra, tagged Birds, Fuglar, Fuglasöngur, Gæsir, Heiðmörk, Korg MR1000, Rode NT1a, Sound devices 552 on 31.5.2011 | 2 ummæli »
Laugardagsmorgun, þann 28. maí 2011, fór ég upp í Heiðmörk til að hljóðrita fuglalíf. Hálfum mánuði áður hafði ég farið á sama stað en þá gleymdist að ræsa upptökuna. Ferðin varð því ekki til fjár. Í þetta sinn átti það ekki að gerast aftur. Ég kom mér fyrir við ósa Hólmsár þar sem hún rennur [...]
Fuglar í ætisleit
Posted in Náttúra, tagged Aquarian H2a-XLR, Fuglar, Sound devices 552, Sundahöfn, Undersea recording on 10.5.2011 | 8 ummæli »
Til er hljóðheimur sem fáir vita um, en er ekki síðri en sá sem við þekkjum. Þessi hljóðheimur er fullur af dýrum sem gefa frá sér hljóð og tjá sig með hljóðum. Skarast hljóðheimur þessi við hljóðheim okkar við yfirborði sjávar. Það er líklega orðið ljóst að hér er verið að tala um sjóinn. Það [...]
Beðið eftir vorinu
Posted in Náttúra, tagged Haglél, Rode NT1a, Sound devices 552, Veður, Vindur on 21.4.2011 | 12 ummæli »
Ekki er hægt að segja að veðrið hafi verið skemmtilegt það sem af er aprílmánuði. Kuldi, hávaðarok og leiðinda rigning eða éljagangur. Einn versti dagurinn var líklega 10. apríl. Þá gerði hávaðaútsýning um allt land, ekki síst á Suður- og Vesturlandi. Margir urðu veðurtepptir víða um land. Útihús og þök fuku og tré brotnuðu í [...]
Fælnir fuglar
Posted in Náttúra, tagged Birds, Fuglar, Rode Blimp, Rode NT2a, Sennheiser ME64, Sound devices 552 on 28.3.2011 | 6 ummæli »
Í vetur hef ég reglulega fóðrað fugla hverfisins með brauði og öðrum matarleifum. Þann 18. mars 2011 gekk á með vestan útsynningi þar sem skiptist á með hvössum éljum, dúnmjúkri snjókomu, glaða sólskini og logni. Stillti ég upp hljóðnemum í um tveggja metra fjarlægð frá fóðurstað. Fuglar sveimuðu í kring og sumir ætluðu að setjast [...]