Það er ekki auðvelt að hljóðrita þögn og skila því frá sér svo einhver nenni að hlusta. En satt best að segja tókst mér það á dögunum undir húsvegg í friðlandinu í Flóa. Undir norðurhlið hússins hefur sauðfé greinilega skýlt sér gegn sunnan sudda eða frá heitum sólargeislum. Það er sauðfé eðlislægt að gera þarfir sínar þar sem það setndur. Því vantaði ekki sauðataðið undir húsvegg fuglaskoðunarhússins sem stendur í miðju fuglafriðlandinu.
Nýju taði fylgja flugur og á þeim var enginn skortur að þessu sinni. Flugnasuðið var svo gott sem það eina sem ég heyrði fyrir utan suðið í eigin höfði. Það kom því svolítið á óvart að hljóðritið skilaði talsvert meiru af hljóðum. Vissulega heyrist mikið grunnsuð, ekki aðeins frá tækjum heldur líka frá flugvélum og bílaumferð norðan og sunnan við upptökustaðin. Þá barst líka talsverður “hávaði” frá öldurótinu við ósa Ölfusár. Fyrir utan flugnasuðið heyrist auðvitað líka í fuglum þó það komi mest á óvart hversu vel það heyrist þar sem þeir virtust flestir vera víðs fjarri á meðan á upptöku stóð.
Önnur hljóð eru líklega þenslusmellir í húsinu, léttir smellir frá gluggaloku og einn þenlusmellur frá öðrum hljóðnemanum. Seinni hluta upptökunnar heyrist í bíl sem kemur að bílastæði friðlandsins og að lokum þegar fólkið úr þeim bíl kemur og stígur á pallinn sunnan við húsið.
Tekið var upp þann 24. júní 2010 milli kl 17 og 18 á Korg MR1000 í 24bit/192Khz og Sennheiser ME62 hljóðnema. Þeim var vísað til norðurs með 90° horni, u.þ.b. 60cm frá húsveggnum.
Myndin er tekin sama dag nærri upptökustað. Horft er til horðurs í átt að Hveragerði (sjá fleiri myndir).
Sækja mp3 skrá (192kbps / 33,4Mb)
Þetta var stórfenglegt! Ég hlustaði fyrst með 20% styrk sem hefur vafalaust verið eðlilegur styrkur. Þá heyrðist suðið ekki. Síðan jók ég styrkinn smám saman upp í 100% og þá kom það fram. Nú eru Sennheiser ME62 mjög algengir þegar menn vilja fá víða umhverfishljóðritun. Læturðu hljóðnemana vísa hvorn frá öðrum eða beinirðu þeim í áttina hvor að öðrum?
Einmitt. Þetta er það erfiða með þessi íslensku náttúrulifshljóð. Það heyrist harla fátt nema suð. Fáir fuglar og fá skordýr sem gefa frá sér háværar hljóðkviður allan sólahringin. Þess vegna verður að hækka hressilega í upptökunum svo allt komi fram sem aftur kemur fram í auknu suði. Því miður, þetta krefst bestu tækja og tækni sem völ er á. Ég hef það ekki og mun seint hafa efni á því.
20% styrkur hefur örugglega verið hæfilegur styrkur undir venjulegum kringumstæðum. En það ríkti alger þögn á meðan á upptökum stóð. Hluti af grunnsuðinu kom frá umferð og frá ölduróti við Ölfusárósa. Það eru liklega tveir smellir og einn fugl sem gera heildarniðurstöðuna svona lágværa. Hugsa það nú að spennandi hefði verið að nota Rode NT2 eða NT2000 og SD 302 formagnarann. Þá hefði ég geta náð „suðlausri“ upptöku. En þessi upptaka var tekin upp í hálfkæringi en ekki í fullri alfvöru og því notaði ég t.d. ekki SD formagnarann.
Ég vísa hljóðnemum alltaf frá hvorum öðrum þar sem ég er hrifnari af þeirri steriomynd.