Deila má um áhrif verslunarmiðstöðva á samfélagið og hvernig þær eru tilkomnar. Víst er að þær hafa drepið kaupmanninn á horninu og að þær eru byggðar af auðhringjum sem ætla sér að græða. Verslunarmiðstöðvar eru tilkomnar vegna samgöngustefnu yfirvalda. Allir verða að eignast bíl. Er því hiklaust logið að fólki að bíll sé nauðsynlegur um leið og stjórnvöld byggja sífellt fyrirferðarmeiri bílamannvirki. Er það gert á kostnað annarra samgangna svo að á endanum hefur fólk aðeins einn kost og það er að fara ferða sinna á einkabílum.
Hverjum er svo sem ekki sama. Bíllinn er diggur þjónn letinnar.
Fyrst fólk er á annað borð komið í bílinn þá gengur það ekki á inniskónum til kaupmannsins á horninu til að kaupa einn lítra af mjólk heldur ekur það 10 km í næstu verslunarmiðstöð, kaupir þar einn lítra af mjólk og ýmislegt annað sem það hefur jafnvel ekki þörf á. Andlit verslunarmiðstöðva eru víðáttumikil bílastæði eða klunnaleg bílastæðahús. Þangað fer því enginn nema á bíl.
Þegar inn er komið gerist það undraverða. Fólk losnar við púströrsfnikinn og hávaðann frá bílaumferðinni um leið og það fullnægir kaupgleðinni.
Veslunarmiðstöðvar eiga því stóran þátt í að eyðileggja vistvæna skipulagsheildir þéttbýlissvæða. Þær hvetja til aukinnar neyslu og til notkunar einkabíla sem hefur svo á allan hátt mjög skaðleg áhrif á borgarsamfélög.
Upptakan sem hér má heyra, var gerð fyrir miðju húsi á efri hæð Kringlunar, sama dag og forsetinn Ólafur Ragnar neitaði að staðfesta icesave lögin frá Alþingi. Fyrir utan fótatak og spjall fólks má einnig heyra í vinnuliftu sem starfsmenn Kringlunar notuðu til að taka niður jólaskraut.
Upptakan er gerð á Olympus LS10 í 24bit / 96Khz með MMaudio lavalier hljóðnemum sem festir voru á gleraugnaspangir mínar við eyrun (Binaural upptaka).
Myndin er tekin á Nokia síma á meðan á upptökum stóð.
Sækja MP3 skrá (192kbps / 17Mb)
Þetta er sótskemmtileg hljóðmynd, Magnús. Greinileg heyrist hvort fólk gengur á bak við þig eða fyrir framan. Hljóðið í hljóðnemunum er þokkalegt miðað við stærð og verð en eitthvað vantar í dýptina. Hvernig vísarðu hljóðnemunum í þessari upsetningu? Að lokum óska ég þér til hamingju með hljóðritin á síðunni og reyndar með síðuna sem er undursamlegt framtak hugmyndaríks og listræns hugsjónamanns.
Takk Arnþór. Ég er sammála þér, það vantar eitthvað í dýptina. Hún er þó meiri í orginal upptökuni þó ég telji að hljóðnemarnir mættu vera betri eða formagnarinn. En eins og þú segir þá eru þeir bara ótrúlega góðir miðað við stærð og verð. Þessir hljóðnemar eru Omni. Vísa þeir fram eða litilsháttar útávið og eru staðsettir rétt aftan við gagnaugað eins og flestar mínar Binaural upptökur. Ég hef verið að spá í að fá mér spöng sem mundi færa þá svo gott sem inn í eyrun. En ég er ekki viss um að það bæti hljómgæðin eða hljóðmyndina sérstaklega. Þá hef ég lika hugsað mér að nota þá til að ná sterio hljómi úr Parabóluni. Eini stóri galinn við þessa hljóðnema er að ég get aðeins tengt þá við Plug-in-power en ekki Phantom. Það þíðir að ég get ekki notað mínu bestu formagnara.