Á fimmtudögum mætir fólk með hljóðfæri á veitingahúsið Highlander að Lækjargötu 10 til að spilað af hjartans list, þá helst keltneska tónlist. Þangað mætir alltaf viss kjarni góðra spilara. Þá sýna sig líka byrjendur og þaulvanir snillingar. Það var fremur kalt úti þann 18. febrúar 2010 þegar ég mætti með upptökutæki. Voru þar mættir fimm hljóðfæraleikarar. Var því fremur fámennt en góðmennt fyrst í stað. Síðar um kvöldið bættist annar við í hópinn sem bæði syngur og flautar lystavel. Verður það efni síðar sett á vefinn. Tekið var upp á Olympus LS10 í 48Khz/24bit. á MMaudio Binaural hljóðnema. Finna má fleiri upptökur frá veitingastaðnum Highlander á þessum vef. Hljóðmyndin tekur 32 mínútur í spilun.
Sækja MP3 skrá (192kbps / 45mb)
Það hefur komið í ljós að í sumum tilfellum hefur ekki verið hægt að hlusta á alla þessa hljóðskrá. Hún á að vera 45,167Mb en hefur stundum vart verið stærri en ca 22Mb.
Upptakan og síðasta lag getur því endað nokkuð snögglega. Ef einhver verður var við þetta má hann/hún hafa sambandi við mig og láta mig vita. Takk. (mb@mi.is (magnus))
Mér fannst hún enda eðlilega, dó rólega út við skvaldur. Skemmtilegar upptökur hjá þér Magnús, væri gaman að fá framhaldið.