Fyrir rúmu ári setti ég á vefinn upptöku af fuglalífinu í friðlandinu í Flóa. Eftir þá ferð var ég harðákveðinn að koma aftur ári síðar.
Dagana yfir sumarsólstöður nú í sumar tjaldaði ég því við Eyrarbakka með allt mitt hafurtask.
Nú kom ég líka með suðminni magnara og hljóðnema. Rétt fyrir miðnætti lagði ég af stað frá tjaldsvæðinu við Eyrarbakka og hjólaði með tæki og tól inn á friðlandið. Það var ákveðið að taka upp alla nóttina, helst í 12 tíma, eða á meðan rafhlöður entust.
Veður var gott. Í raun nákvæmlega það sama og árið áður. Hiti u.þ.b. 5-7° C, léttskýjað og breytileg vindátt. Vindstyrkur var frá því að vera logn allt að 8 m/s sem því miður má stundum heyra í þessari löngu upptöku. Yfir daginn fór vindstyrkur upp í 15 m/s sem heyra má í hljóðfærslu frá því í ágúst s.l.
Með nýjum hljóðnemum varð útkoman skárri en árið áður.
Þó enn heyrist suð í tækjum (hvítt suð) þá skiluðu þau ágætum upptökum af ótrúlega lágværum hljóðum sem vart voru merkjanleg með berum eyrum. Þá var ekki hjá því komist að hljóðnemarnir tækju upp hljóð frá bílaumferð sem gátu ekki annað en verið í margra kílómetra fjarlægð, því ekki sást til allra þeirra sem heyrðust á hljóðritinu þessa nótt. Þá er suðið í briminu út með suðurströndinni mjög greinilegt. Breytti engu þó ég reyndi að koma hljóðnemunum í skjól og beina þeim í aðra átt.
Í upptökunni má heyra í mörgum fuglum. Ég ætla að láta hlustendur um að þekkja þá og koma með nöfn þeirra með því að “Rita ummæli” hér fyrir neðan.
________________________________________________
Nature reserve in Flói 2011 – Part 1
Last summer solstice I went to a nature reserve in Flói, in the south of Iceland to record birds life. The result was many hours of recording.
It is my intention to put most of it to the website in the future months. The recording below was recorded between 1:00 to 2:00 am.
The recording device give a brilliant result in this quiet atmosphere. Most of the background noise is coming from surf along south coast and some traffic noise.
Many birds are in this session like Red throated Loom and Phalarope. Other animals are sheep, horses and driving humans (Homo mobil petrolium).
Sækja mp3 skrá (192kbps / 37,8Mb)
Recorder: Korg MR 1000 v/Sound Devices 522 mixer
Mic: Rode NT1a. NOS setup, 30cm/90°
Pix: Canon 30D (see more pictures)
Þetta eru frábærar upptökur Magnús. Maður hefur séð þúsundir af myndum af Íslandi í gegnum tíðina, en ég minnist þess ekki að hafa heyrt hljóðrit af Íslandi áður
Takk fyrir þetta Jakob.
Það er rétt. Það eru ekki margir í þessum hljóðritabransa hér á landi. Hugsanlega vegna þess að íslendingar nenna ekki að hlusta.
Þá eru ótrúlega margir á móti því að maður hljóðriti. Flestir álita svo að maður sé fyrst og fremst að stela einhverju. Þetta á þó sérstaklega við um tónlist. En það minnir svolítið á frumbyggjana sem vildu ekki láta taka mynd af sér vegna þess að myndavélin tæki burt sálina úr fólki.
Það er lika alveg stórmerkilega hvað fáir íslendingar hafa lítinn skilning á „góðu“ hljóði. Það á meira að segja við um fjölmarga sem eru að vinna í „hljóði“ t.d. í útvarpi eða í kvikmyndun.
Þá er þessi upptökubúnaður alveg sérstaklega ofurtollaður vegna einhverra afbrigðilegra hvata afdankaðra embættismanna. Bara vegna þess þarf ég ekki að „óttast“ samkeppni næstu árin.
Við erum annars tveir sem vinnum í þessu áhugamáli hér á landi. Ég og Arnþór Helgason sem er með sitt blog: http://hljod.blog.is
Það eru yfirleitt útlendingar sem sýna þessm hljóðritum mestan áhuga.
En það er svo sem lika hið besta mál.
Magnús
What a stunning landscape! It is so beautiful. Your microphones have picked-up such quiet subtle sounds. I really like the sound of birds (?) paddling in the water. I often try to avoid traffic sounds in the background, but in your recording it helps make the space you are recording seem more intimate. Nice work.
Thanks.
It surprise me how good NT1a are for nature recording. This session was recorded with almost full gain on SD552. I can hear much more detail far away than I do with bare ears. Sometimes when it is really quiet I think I can feel „the space“ in the county. It looks like a third dimension in audible sound 🙂
Car- or air traffic noise was barely noticeable with bare ears during all this recording hours. But when they pass, specially air traffic, it open the space and give the recording some specific sound.
I think the bird you mentioned is Red-necked Phalarope
It was a wonderful half-hour I’ve spent listening to this recordings. Many thanks indeed.
Thanks Vladimir.
I love this sound to. It is even better than most music. This sound and the nature atmosphere is in fact the reason I am ready to spend both time and money to capture it.
I can listen to this recording again and again and never be tired of it.
Kærar þakkir fyrir þetta
Ég er alinn upp á svæðinu (í Kaldaðarnesi) og þessi „tónlist“ er tengd mörgum ánægjulegum minningum. Það er ákaflega gaman að heyra hana á ný.
Gaman að vita það Sigurður.
Mér hefur oft verið hugsað til þeirra sem búa á svæðum sem þessum og geta upplifað réttu skilyrðin.
Það er yfirleitt heppni ef maður er staddur á réttum stað og tíma við hljóðritun sem þessa. Fyrir utan hljóðin sjálf þá berast þau mjög misvel um loftið yfir sólahringinn. Það er ekki nóg að það sé logn það þarf lika að vera rétta hitastigið og sólarlaust. Það er því nokkuð merkilegt að fylgjast með því hvernig hljóðið breytist frá nótt fram á dag.
Takk fyrir þetta Magnús. Ég nýt þess að hlusta á þetta og á örugglega eftir að hlusta á þetta oftar í vetur þegar ég ylja mér við tilhugsunina um að fá að upplifa íslensk sumar á ný.
Velkominn aftur Sigríður.
Þó það hljómi hálf furðulega í fyrstu, Þá getur það verið ótrúlega notalega að leyfa náttúrunni að hljóma með lágværum styrk um íbúðina. Fyrr en varir hættir maður að taka eftir „hljóðunum“ sem þá hljóma eins og þau komi inn um opinn glugga 🙂