Recordings from Flói nature reserve continues. This two recordings were captured around 3:30 and 4:00 am, 25th of June.
The first recording contains mostly far distance sounds, a quiet relaxing midsummer sound scape. Birds are living their life, flying around and searching for food. Gusts sometimes disturb the recording with rumble sound .
The second recording was recorded around 4 am. It contains the first of many jet flights this morning from Europe to America. Morning sunbeams are now really going to heat the field so clouds of gnats are even thicker than before. A duck with youngsters are pushing their body through rushy field searching for food around the microphone.
Both this recordings are worth to played as a background sound at home or work.
Friðland í Flóa 2012 – 3. hluti
Hér er framhald af fyrri upptökum úr friðlandi í Fóa 2012. Þessar upptökur er frá u.þ.b. kl 3:30 til 4:00, að morgni 25 júní.
Fyrri upptakan inniheldur fremur þögula hljóðmynd af fuglalífi svæðisins. Heyra má þó í óðinshana busla í nálægri tjörn og stöku sinnum stingur kría sér í tjörnina í fæðuleit. Vindkviður eiga það svo til að trufla upptökuna.
Í seinni upptökunni má heyra í fyrstu þotunni þennan morguninn fljúga milli Evrópu og Ameríku. Sólargeislar brjótast nú í gegnum skýin yfir Ingólfsfjalli og verma svæðið. Þegar vind svo lægir þá lyftir flugan sér í þéttum skýsveipum og með miklu suði. Önd með unga kjagar með unga sína í þéttu mýrargrasinu umhverfis hljóðnemana í fæðuleit.
Báðar upptökurnar njóta sín best sem bakgrunnshljóð heima við eða á vinnustað.
3:30am
Download mp3 file (192kbps / 32Mb)
4:00am
Download mp3 file (192kbps / 31,2Mb)
Recorder: Sound devices 744
Mics: Rode NT1a (NOS setup)
Pix: Canon 30D (See more pictures)
Listen to other parts of „nature reserve in Flói 2012„
Frábært að hlusta á þetta.
Gaman að vita það Alex.
Að mínu mati er þetta nú ekki besti parturinn af því sem ég tók upp þarna.
Það má því gera ráð fyrir að síðar komi á vefinn eitthvað betra 🙂
Hreinasta listaverk, Magnús. Er óðinshaninn vinstra megin? Ég þekki ekki hljóðið í honum, þótt skömm sé frá að segja. Á tjörninni er einhver smáfugl sem eins og geltir. Hvaða fugl er það?
Takk Arnþór.
Það væri nær að þakka móður náttúru fyrir þetta listaverk.
Ég geri ráð fyrir að buslið og skvampið sé Óðinshani, ekki síst þegar hraður vængjasláttur fylgir með.
Það má heyra þarna hundgá í fjarska. Sá er annað hvort á bænum Hreiðurbergi eða Kaldraðarnesi. Ég man ekki til þess að ég hafi heyrt það með berum eyrum en það heyrist þó þarna. Sama gildir um hanagal sem liklega kom frá bæjunum Vallanesi eða Sólvangi.
Ekki langt frá hljóðnemunum dormuðu alltaf tveir Lómar. Fyrir utan hávært vælið má lika heyra lágvært kjökur eða snökkt frá þeim. Það má vera að þér finnist það vera hundgá.
Í síðari upptökunni heyrist mér að önd með tvo unga sé að kjagast um í grasinu nærri hljóðnemunum.
Ég er svo reyndar ekkert öruggur með það því ég notaði snákinn og var því aldrei nærri hljóðnemunum.
Frábært, Magnús! Þarna eru talsverð óðinshanahljóð á fyrri upptökunni og á einum stað flýgur hann upp (2.56). Hljóðin í honum eru hvellt gagg eða gelt sem heyrist til dæmis við 0.50.
Rétt hjá þér Pétur. Þarna eru á ferð óðinshanar. OK það má kalla þetta gelt 🙂
Ég tel það víst að óðinshanar eigi líka létta buslið eða dropahljóðið sem heyra má gegnumsneitt í allri upptökunni. En skvampið sem heyrist öðru hvoru og líkist því sem grjóti sé kastað í tjörnina, á krían þegar hún stingur sér eftir æti.
Þegar það heyrist í þungum vængjaþyt eða hvinur í lofti er það nær undantekningalaust Lómur á ferð.
This is really great work Magnus. I much enjoyed listening to these sounds.
Thanks Des. I like you enjoy it.