Ekkert jafnast á við það að liggja úti í náttúrunni og fá tækifæri til að hlusta á fuglana í þögn frá vélardrunum mannsins. Hljóðin hafa mikið breyst á ótrúlega fáum árum. Með hverju ári verður sífellt erfiðara að nálgast fuglahljóð í ómengaðri náttúru. Með sífellt meiri hávaða og loftmengun er mannskepnan ekki aðeins að breyta sínu nánasta umhverfi heldur líka búsvæðum annarra lífvera og loftslagi á allri jörðinni. Fyrr en síðar mun það því miður bitna mjög harkalega á öllum lífverum.
Friðland í Flóa er lítið dæmi um að til séu menn sem af veikum mætti vilja endurheimta votlendi og þau náttúrugæði sem þeim fylgja. Eru þá framræsluskurðir stíflaðir svo grunnvatn hækkar á svæðinu sem svo laðar að sér ýmsa fugla.
Þótt mesta fuglalífið hafi verið nær stöndinni þegar þetta var tekið upp, þann 24. júní, þá vantaði ekki fuglana á friðlandið. Það heyrist þó ekki mikið í þeim og þurfti talsverða mögnun til að ná þessari upptöku sem því miður kemur fram í talsverðu suði. Svo nokkuð sé nefnt þá má heyra í kindum, flugu, lómi, hettumávi, lóuþræl, spóa, álft og hrossagauk. Þá heyrist bíla- og flugumferð að vanda sem og ölduniði sem lemur suðurstöndina í fjögurra km fjarlægð aftan við hljóðnemana.
Í uppökunni heyrist vel í óþekktri andartegund sem ekki sást en virðist hafa komið ansi nálægt upptökustað. Þeir hlustendur sem telja sig vita hvaða fugl sé þar á ferð eru beðnir um að segja frá því hér.
Tekið var upp á Sennheiser ME62 hljóðnema sem vísað var í 90° til norðurs. Sound device 302 formagnara og Korg MR1000 í 24bit/192khz. Myndir voru teknar á Canon D30
Sækja mp3 skrá (192kbps / 35,6Mb)
Ég óska þér enn og aftur til hamingju, Magnús. Þú ert vandvirkur listamaður og allt umhverfið skilar sér prýðilega. Suðið angraði mig ekki að marki því að ég stillti hljóðið ekki mjög hátt þegar ég hlustaði. Ýmsar leiðir eru til að bæta úr suðinu án þess að rýra nokkuð gæði fugla- og umhverfishljóðanna. Hætt er að fá directx-viðbótarbúnað sem m.a. goldwave les. Þó er rétt að hala niður tilraunaútgáfum áður en lengra er haldið. Í þessum orðu man ég eftir að ég á suðhreinsibúnað frá Sony sem ég gat ekki notað, en nú nota ég annað forrit. Ég athuga hvort ég geti sent þér hann með zip-skrá. Þetta er löglega keyptur búnaður sem ætti að duga. Næsta skref í fuglahljóðritunum er að sækja um heimild til þess að loka Suðurlandsvegi einhvern tíma og reyndar þá um leið veginum að Eyrarbakka og gefa nokkrum hljóðriturum næði til þess að athafna sig í fuglafriðlandinu. Tek gjarnan þátt í slíkri umsókn ef af verður.
Takk fyrir þetta Arnþór. Því oftar sem ég hlusta á þessa upptöku því meira fer suðið í taugarnar á mér. Það er nefnilega ýmislegt að finna á þessari upptöku sem gaman væri að heyra suðlaust. Það er í raun hörku líf í henni þó mér hafi fundist nokkuð dauflegt á meðan á upptöku stóð en hún tók rúma tvo tíma. Ég var svo sem heldur ekki nærri staðnum.
Er búinn að reyna taka upp magnarasuð til að nota í suðhreinsun. Það eina sem kemur út úr því er að SD302 magnarinn er stórfurðulegur þegar inngangurinn er álagslaus. En það má vera að það sé eðlilegt og það er reyndar enn verra í Korg tækinu. Þarf væntanlega að útbúa „dummyload“ á inngangana
Hef hugleitt að ná frekar suðinu í hljóðnemunum þar sem það er ca 30-50 dB meira en í magnaranum. En þá vandast málið. Ég get ekki fundið nokkurn stað með dauðaþögn, ekki einu sinni með hljóðnemann vafinn í þykkan svefnpoka, inni í skáp niðri í kjallara.
Ég ætti kannski að skoða þessi forrit sem þú nefnir því sá suðhreinsipakki sem er sjálfgefinn í Goldwave er ekkí ásættanlegur…nema hugsanlega mér takist að finna rétta grunnsuðið. Ég fúlsa því ekki við hjálp frá þér Arnþór.
Það er að rifjast upp fyrir mér að líklega var ég ekki með SD302 í þessari upptöku. Hann var liklega tengdur við Olympus tækið á öðrum stað.
Mér fannst nefnilega ég heyra svo litið af hljóðum að ég reyndi að vera með tvo tæki í gangi á mismunandi stöðum svo ferðin í friðlandið mundi hugsanlega ekki verða til einskis. Suðið í upptöku er því aðeins tengt Korg tækinu.
En þegar ég hlusta á upptökuna í fullum gæðum þá er grunnsuðið minna og í raun staðsett á öðrum stað en fuglasöngurinn. Ég þarf því að athuga hvað fór úrskeiðis hjá mér við yfirfærsluna í MP3. 192kbps er þó liklega góð skýring.
Við nánari kynni er þessi upptaka svo skemmtileg og lífleg í góðum gæðum að hún gefur fullt tilefni til að verða yfirfarin og sett á netið í annað sinn í meiri gæðum.
Snilldarupptaka Magnús, ég hef eytt vikum, jafnvel mánuðum í Friðlandinu og þetta er eins og vera staddur í miðri hljómkviðu sumarsins þar. Heyri í 15 tegundum, en hvar í upptökunni er þessi önd sem þú nefnir? Fuglarnir eru þessir:
1. Lómur
2. Álft
3. Tjaldur
4. Heiðlóa
5. Lóuþræll
6. Jaðrakan
7. Spói
8. Hrossagaukur
9. Stelkur
10. Óðinshani
11. Hettumáfur
12. Svartbakur
13. Kría
14. Þúfutittlingur
15. Hrafn
Og hugsanlega heyrist einnig í sílamáfi.
Suðið er ekki mjög áberandi þegar maður hlustar á þetta í tölvu, en ég treysti mér ekki inná tæknislóðir ykkar Arnþórs.
bestu kveðjur
Jóhann Óli
Takk fyrir þetta Jóhann.
…og takk fyrir fuglalistann.
Ég held að flestir hafi sannmælst um að urædd „önd“, sem kvakar þarna hátt og skýrt nokkrum sinnum sé Lómur. Annars kom lika hugmynd um að þetta væri Gargönd.
Maður hættir svo sem að taka eftir suðinu eftir nokkra hlustun. En þessar náttúruupptökur gætu , ef vel er gert, orðið svo mun betri suðlausar.
Mun taka á því þegar hentar.