Í lok apríl og byrjun maí gerði ég nokkrar tilraunir til að hljóðrita fuglalíf á Seltjarnarnesi. Ég gafist upp á því vegna stanslausrar bílaumferðar fram og til baka út á nesið. Það var líka fjöldi fólks sem virtist stunda sína útiveru á Nesinu, ekki síst við Bakkatjörn, með því að sitja í bílunum í vegkantinum með bílvélina í gangi. Það heyrðist því fátt annað en drunur og innspítingar í bílvélum og miðstöðvum þau skiptin sem ég gerði mér ferð á Nesið með upptökutækin.
Rétt fyrir miðnætti þriðjudaginn 4. maí fór ég út á Seltjarnarnes. Gekk á með súld af og til svo búast mátti við fáu fólki eða bílum fram Nesið svona seint um kvöld. Hljóðnemunum var komið fyrir í lítilli laut norðan við golfskálann svo að sem minnst heyrðist í bílum sem kæmu út á nesið. Það var heppilegt því fjórir bílar komu í erindisleysu fram á Nesið á meðan á upptöku stóð og án þess að það truflaði upptökuna að ráði. Besti tíminn fyrir upptöku hefði verið snemma morguns milli kl. þrjú og sjö en það er vart boðlegt vinnandi fólki.
Það sem einkennir þessa upptöku er fjölskrúðugt fuglalíf; vaðfuglar, endur og gæsir og greinilegt að krían er enn ókomin. Hrossagaukurinn er áberandi og hefði getað heyrst betur í honum ef hann hefði ekki haldið sig mestu sunnan við golfskálann á meðan á upptöku stóð. Þá heyrist í regndropum falla sem og af og til í misstórum úthafsöldum skella í fjörunni handan grjótgarðsins sem umlykur Nesið á alla vegu.
Upptakan er tekin frá kl. 23:00 til 23:30. Í hálftíma eftir það kæfðu vélar frá kaupskipi á útleið þögnina með þungum drunum fram yfir miðnætti. Er sá hluti upptökunnar ekki færður hér til eyrna.
Notaðir voru tveir Sennheiser ME62 í Blimp vindhlífum sem vísuðu í u.þ.b. 90° til norðurs. Tekið var upp á Korg MR1000 í 192Khz/24bit. Myndin er tekin nærri tökustað á meðan á upptöku stóð.
Sækja MP3 skrá (192kbps / 44Mb)
Þetta er með skemmtilegustu umhverfishljóðritum sem ég hef lengi heyrt. Heyra má ferns konar hljóð hrossagauksins, muldur margæsarinnar og fleira og fleira. Skemmtilegast þótti mér að heyra öndnokkra fljúga í hálfhring og hrossagaukinn svo nærri að ég var hræddur um að hann flygi á mig. Þá mátti einnig heyra ískrið í flugfjöðrum gæsanna. Ég tók eftir hinu sama og greina má á hljóðriti sem ég á frá árinu 1998 að djúpur undirtónn virðist vera í hljóðritinu. Er hann meira áberandi nær Bakkatjörninni á hljóðritinu frá 1998. Ég hef velt fyrir mér hvort um sé að ræða hávaða frá Hitaveitu Seltjarnarness. Þú átt hrós skilið fyrir þetta, Magnús.
[…] eftir Hljóðmynd Fyrir rétt rúmum mánuði, þann 4. maí, hljóðritaði ég fuglasöng við golfskálann á Seltjarnarnesi. Þá heyrðist ekkert í kríu, aðeins í gæsum, mó- og […]
Lovely recording!
Is it birds you hear flying by that creates that nice wobbling sound?
/Magnus aka inovember
Thanks Magnus.
Yes, this is a bird. I think you are asking about the bird that we call in Iceland „Hrossagaukur“ (Gallinago gallinago) http://en.wikipedia.org/wiki/Gallinago . The male bird make this noise with his tail feathers during flying up and down around the nest place.
Fascinating sound indeed.
Even though I’m not that good at Icelandic I really think sounds overlaps all language barriers so I’m looking forward to future posts!
/Magnus