

Skrifað í Náttúra | Merkt Æðarfugl, Fjara, Fuglar, Korg MR1000, Seltjarnarnes, Sennheiser ME66 | Leave a Comment »

Efnt var til Þjóðfundar 14. nóvember 2009 í Laugardalshöll. Í heilan dag vann mikill fjöldi fólks að því að reyna að bæta íslenskt samfélag með skapandi hugmyndavinnu. Umfjöllunarefnið var m.a. lýðræði, heiðarleiki, velferð, virðing, ábyrgð, sjálfbærni, kærleikur, frelsi, jöfnuður, fjölskyldan, atvinnulíf, menntamál, umhverfismál, samfélag og stjórnsýsla. Á fundinn kom 1231 þátttakandi, og var fundurinn í alla staði ákaflega vel skipulagður nema að einu leyti. Þegar upptakan fór fram kl 15:00, stóð vinna sem hæst við öll borð, en fyrir utan Höllina voru nokkrir leðurklæddir lögregluþjónar í óðaönn að skrifa sektarmiða á tugi, ef ekki hundruð bíla, sem lagt hafði verið út um allar koppagrundir í Laugardalnum. Þeir sem stóðu að undirbúningi Þjóðfundar, höfðu greinilega ekki tekið með í reikninginn að 1231 íslendingum fylgdu ámóta margir bílar. Almennt sagt, má gera alla hluti betur næst. Það má því senda playstationleik niður á lögreglustöð næst þegar blásið verður til Þjóðfundar. Það lýsir líklega þjóðarsálinni best að aðeins 19 reiðhjól stóðu fyrir utan Höllina meðan á fundinum stóð. Einkennilegt, þar sem úti ríkti einstök veðurblíða, og væntanlega voru flestir þátttakendur af höfuðborgarsvæðinu. Það var því ekki sjálfbær eða vistvænn hópur, sem þarna fundaði. Upptakan fór fram með þeim hætti að genginn var einn hringur um salinn með Rode NT4 hljóðnema. Tekið var upp í 24bit / 192kHz WAV sniði á Korg MR1000.Myndin er tekin á Þjóðfundinum.
Sækja MP3 krá (192kbps / 5,3Mb)
Skrifað í Mannlíf | Merkt Þjóðfundur, Bílaumferð, Fólk, Fundur, Korg MR1000, Rode NT4 | Leave a Comment »

Skrifað í Náttúra | Merkt Öldur, Bílaumferð, Fjara, Korg MR1000, Sea, Seashore, Sennheiser ME62 | 4 Comments »

Skrifað í Óflokkað | Merkt crane, Eimskip, Gámakrani, Korg MR1000, Rode NT2a, Sundahöfn, Vélahljóð | Leave a Comment »

Sækja MP3 skrá (128kbps / 4,6Mb)
Skrifað í Náttúra | Merkt Olympus LS10, Rigning, Sundahöfn, Vindur | Leave a Comment »

Það var heiðskírt og sólin var að gægjast upp fyrir sjóndeildarhringinn við Jökulsárgljúfur. Klukkan var 4:30 12.júlí 2009. Í Vesturdal liðast lítill, tær lækur í átt að Jökulsá á leið sinni til sjávar. Ofar í dalnum sváfu allir fasta svefni á tjaldsvæðinu. Það ríkti því dásamleg þögn. Aðeins heyrðist seytlið í læknum og einstaka tíst í fuglum. Tekið var upp á Korg MR1000 í 24 bit/198 kHz. Hljóðnemar voru tveir Sennheiser ME62 í 80° horni. Snúrur voru CAT6 1,5 metrar. Heildarlengd upptökunnar er 45 mínútur. Myndin er tekin á upptökustað
Sækja MP3 skrá (128kbps / 5mb)
Skrifað í Náttúra | Merkt Fuglar, Fuglasöngur, Lækur, Vesturdalur | Leave a Comment »

Þann 24. janúar 2009 fór ég með hljóðnema niður á Austurvöll og tók upp stemninguna. Ræsti ég tækið austur undir Dómkirkjunni og gekk inn í mannþröngina framan við Alþingishúsið. Þar héldu allir á sér hita með taktföstum búsáhaldaslætti og trylltum vígadansi. Mátti þar m. a. sjá verðandi ráðherra í næstu ríkisstjórn. Upptakan stóð yfir í rúma klukkustund en því miður misheppnaðist hún gersamlega. Aðeins tíu fyrstu mínúturnar voru áheyrilegar. Notast var við Korg MR1000 og tvö stykki Sennheiser ME62 á T-spöng með 90° horn. Eftir fikt kvöldið áður gleymdust í hljóðnemunum ónýtar rafhlöður og þótt kveikt væri á Phantom power á upptökutækinu þá varð það ekki til þess að yfirtaka spennuna frá þessum ónýtu rafhlöðum. Hljóðdæmið hér fyrir neðan er því besti hluti þessarar upptöku. Myndin er tekin á Nokia síma, 21. janúar 2009 við Alþingishúsið rétt fyrir kl. 1. Síðar hefur komið í ljós að á þeirri stundu var lögreglan hársbreidd frá því að ganga til bols og höfuðs á mótmælendum. Það hefði endað með subbulegu blóðbaði.
Sækja MP3 skrá (192kbps / 17,5mb)
Skrifað í Mannlíf | Merkt Alþingi, Austurvöllur, Óeirðir, Bankakreppa, Búsáhaldabylting, Bylting, Korg MR1000, Mótmæli, Protest, Sennheiser ME62 | 1 Comment »

Þá er komið að því að setja fyrsta efnið inn á vefinn. Hér er á ferðinni upptaka frá því 1978. Sá sem syngur er Þorleifur Magnús Magnússon (Brói), sonur Laufeyjar Jakobsdóttur, “Ömmu” í Grjótaþorpi, sem bjargaði mörgum ofurölvi unglingnum á þessum árum. Upptakan er líklega frá því í febrúar 1978 og tekin upp í Skálholtsskóla þar sem við báðir, Brói og ég, stunduðum nám veturinn 1977-1978. Tekið var upp á Kenwood KX520 kassettutæki með dynamískum Kenwood MC501 hljóðnemum. Á þessum árum voru kassettur mjög dýrar. Því var oftast nær tekið upp á mjög lélegar kassettur eins og heyra má á upptökunni.
Sækja MP3 skrá (128kbps / 5mb)
Skrifað í Music & release | Merkt Music, Music & release, Skálholt, Skálholtsskóli | Leave a Comment »
Það hefur tekið þó nokkurn tíma að koma þessari síðu af stað. Aðallega er það vegna leti, þó hefur nú blessuð „kreppan“ gefið mér tíma til að sinna áhugamálum fremur en eintómu brauðstriti. Vefsíðan mun útvarpa og birta myndir af því í mannlíf, umhverfi og náttúra hefur upp á að bjóða. Hversdagslegustu hlutir geta oft á tíðum verið afar merkilegir ef við gefum okkur aðeins tíma til að nota skynfærin. Ég vona því að Hljóðmynd muni gefa einhverjum tilefni til að staldra við og njóta.
Skrifað í Óflokkað | Leave a Comment »
